Auglýsing

www.magnea.blog.is

06. febrúar 2007 klukkan 22:05
www.magnea.blog.is

Magnea Arnar
Engin athugasemd

06. febrúar 2007 klukkan 04:29
bloggar.is er drasl !!!
kemst aldrei inn á þetta dótarí

www.magnea.blog.is
Magnea Arnar
Engin athugasemd

desember

04. desember 2006 klukkan 18:44
ég er á prikinu eins og svo oft ég er að leita mér að nýrri íbúð. Séríbúð með sér baðherbergi, þekkiru einhvern sem er að leita að góðum leigjanda ? láttu mig vita

ég átti að fara í próf í dag í íslensku en allt kom fyrir ekki ég fór ekki því verkefni sem ég gerði í vetur og gildir huge part af einkunninni skilaði sér ekki þannig að ég fer bara í nát próf á morgun.

ég þarf að kaupa mér aðventukrans ég er að pæla í að búa hann til sjálf..
jólin koma bráðum það er fínt.
Ég gerði góðverk um daginn, bauðst til að vinna aðfangadagskvöld fyrir mann sem á þrjú lítil börn, mér líður ekkert smá vel með að gera þetta fyrir hann :)

Þvottavélin fer að verða búin svo ég þarf að fara heim.
og Ég er ekkert að vinna í dag ?!

kv Magnea
Magnea Arnar
3 athugasemdir

11. nóvember 2006 klukkan 18:58
er í 150-170% vinnu og skóla
blogga kannski á nýju ári !
Magnea
Magnea Arnar
1 athugasemd

nýtt heimili

30. september 2006 klukkan 21:57
Ég er að flytja að heiman í næstu viku, á Ránargötuna !!
Ég elska að í dag stóð í blaðinu að enginn gæti sleikt á sér olnbogann og enginn gæti sett olnbogann á eyrað á sér, ég elska það því að það hafa pott þétt svo margir prufað það í dag.
Ég þarf að halda áfram að pakka !
Magnea Arnar
3 athugasemdir

Sauðárkrókur

19. september 2006 klukkan 04:53
Jæja nú er ég komin heim úr ródtrippinu mínu á Sauðárkrók. Ferðin fram og til baka gekk vel þrátt fyrir leiðinlegt veður. Ég mætti eins og sönnum gesti sæmir með fullt kælibox af áfengi og fulla poka af nammi. Við drukkum ótæpilega fyrra kvöldið þannig að við gátum svo gott sem ekkert drukkið á laugardagsköldinu því laugardagurinn fór í þynnku yfir sex & the city og nammiáti. Ég kynntist fullt af fólki alveg af öllum tegundum og var það bara mjög gaman !!


Hinsvegar byrjaði skólinn í dag þannig nú þarf ég að fara að læra og ég byrja á næstu syrpu annaðkvöld á miðnætti, jey jey jey !!

Myndir frá Sauðárkróki og MR reifinu eru komnar inn

Til hamingju FH með íslandsmeistara titillinn !!

adios ! magnea
Magnea Arnar
Engin athugasemd

life

10. september 2006 klukkan 02:20
Jæja það þýðir ekkert að vera slöpp í að blogga lengur !
Milli vinnusyrpa er ég bara að taka myndir og hanga í nýju fínu tölvunni minni :)
Skólinn er ekki byrjaður en það verður vonandi bara gaman.
Það var MR-RAVE á fimmtudaginn það var brjálað bara glowsticks og sviti, svaka fjör !!
En ég þarf samt að hætta að skrifa þessa ÚBER færslu því ég þarf að leggja mig fyrir næturvaktina æðislegu, fimman mín (krabbinn minn (vinnutækið mitt)) bíður eflaust spennt eftir mér ;p Næsta helgi er svo Sauðarkrókur, þarf bara að redda mér bíl, en annars tek ég bara rútu !! Allt fyrir að hitta hana Eddu mína <3
Takk takk
kv. Magnea
Air - Bathroom Girl (brjálað lag) - eins og allur The Virgin Suicides er reyndar
www.flickr.com/people/stjornufifill
ps: Mig vantar módel fyrir skemmti-tökur svona til að eiga og sýna vonandi þegar ég sæki um í skóla í haust, let me know. magnea@mac.com
Magnea Arnar
1 athugasemd

fits like a glove

23. ágúst 2006 klukkan 19:07
Ég finn fyrir öfund... ég öfunda það sem ég hélt að ég myndi aldrei geta öfundað: þá sem eru að byrja í skólanum. Ég vildi að ég væri að byrja í skólanum, nýjar spennandi kennslubækur, nýjir kennarar. En þetta árið verður eitthvað lítið um það kannski tek ég nokkra áfanga í fjarnámi til að byrja með en það kemur bara í ljós.

Vinnan mín: ég hef engin orð
fyrir utan það að þegar ég er að vinna þá hlusta ég alltaf á Talstöðina eða rás2. Talstöðin er NFS í útvarpsformi og er alveg ágætis stöð út að fyrir sig, hinsvegar það sem ég tek svo vel eftir er veðurfréttaflutningurinn. Alla mína tíð hefur alltaf verið fylgst með veðurfréttum á RUV því þær þóttu og þykja enn á mínu heimili þær áreiðanlegustu, þar er sagt hreint út hvernig veðrið verður og þess háttar, sem sagt ekkert vesen. Á hinn bóginn á NFS er sífellt verið að afsaka veðrið. Ef það er spáð rigningu hljómar það eitthvað á þessa leið: tja já haustið er víst að koma og við getum ekki gert neitt í því.. ect. Og ef það er gott veður: frábært draga fram línuskautana og skella sér í elliðárdalinn auðvitað hefur sumarið ekki yfirgefið okkur.. ect. Þessar afsakanir fyrir veðrinu eru farnar að fara í taugarnar á mér.

Helgin var frábær, við stelpurnar skemmtum okkur konunglega þrjú kvöld í röð. Öll kvöldin voru mögnuð en samt öll svo ólík. Það sem samt stendur upp úr er 90s djammið á 11unni á föstudaginn við dönsuðum dönsuðum og dönsuðum. 11an var sveitt, það kom móða á gleraugun mín þegar ég kom á efri hæðina og hárið á mér var blautt eins og eftir sturtu namminamm.
Menningarnótt var samt ágæt við systurnar fórum á nokkra tónleika og sýningar (Tepokinn voru bestir lang bestir) borðuðum á nýjum stað sem heitir Geysir og er einmit í Geysishúsinu ;p maturinn var ekki upp á marga fiska en skemmtilegur staður þrátt fyrir það.

Núna held ég í vinnuna á seinni kvöldvaktina mína sem þýðir að ég er hálfnuð með vaktaspyrpuna mína !

Nú: Elliott Smith - King's Crossing
Billy's pizza - nostralgía frá því að ein jólin vann ég við að pakka inn kertum og spilum sem spron gaf viðskiptavinum sínum í jólagjöf
www.myspace.com/magnea

ágúst

21. ágúst 2006 klukkan 03:10
jæja eyjar eru búnar og sumarið með þeim. Byrja kannski að segja frá eyjum aðeins:
* dó fyrsta kvöldið'
samt bara í 3 tíma
* fékk heilahristing annað kvöldið
hélt að það væri Þjóðhátíð 2004 og að ég héti Eyrún ofl.
* tjaldið okkar fauk annað kvöldið
þrátt fyrir að það hafi verið að besta stað og svo rosalega vel hælað niður
* þriðja kvöldið byrjaði vel
endaði ekki svo vel
= Þjóðhátíð er fín, bara ekki fyrir mig

Annars er ég byrjuð að vinna upp í kerskála sem er fínt ég vinn 6 vaktir á 5 dögum tvær næturvaktir tvær kvöldvaktir og svo tvær dagvaktir ágætt bara, vinn á tæki sem er kallaður Krabbi og er alveg ágætt.
Haustið er samt enn óráðið en það kemur vonandi í ljós á morgun hvað gerist.

Helgin var frábær fimmtudagurinn, föstudagurinn og laugardagurinn. Skrifa kannski e-jar sögur frá því á morgun þegar ég hendi myndum helgarinnar inn.
Eyjamyndirnar eru komnar og alveg hellingur af þeim.

Bless bless
Magnea Arnar
2 athugasemdir

Verslunarmanna helgin !!

02. ágúst 2006 klukkan 21:02
Jæja nú er ég hætt að vinna á flutningadeildinni og komin í "sumarfrí". Fór í kjálkaaðgerðina á föstudaginn og hún gekk bara mjög vel, lá samt með kælipokann á kjaftinum í tvo daga en það virkaði þ.a.s. ég er ekkert bólgin.
Sunnudagurinn var án efa samt fallegasti dagur sem ég hef upplifað lengi og ekki bara út af því að við fórum að horfa á Steinþór keppa heldur fórum við Eyrún og Pabbi saman á SigurRós tónleikana. Við vorum mætt á Miklatún rúmlega 6 með tjaldstólana, nestið, myndavélina og allt saman til að vera nú örugglega fremst, sem við vorum alveg á fullkomnum stað til að hlusta á þessa fullkomnu tónleika. Katrín, Steinar, María og Kalli voru svo hjá okkur. Pabbi fór á Devitos og kom með pizzu til okkar sem var alveg frábært. Amiina voru frábærar og komu okkur í rétta gírinn fyrir snillingana. SIGURRÓS fær þakkir frá mér (og eflaust svo mörgum) fyrir frábæra tónleika. Ég mun pottþétt sjá til þess að það hitti þannig á að ég fari á aðra tónleika með þeim þegar ég er í heimsreisunni.

Fyrir utan mikla verki í kjálkanum er vikan búin að vera ágæt. Er að leggja af stað núna upp í Heydal (á vestfjörðum) til að vera hjá ömmu þegar hún verður 80.ára á föstudaginn. Öll fjölskyldan að hittast þar í svaka veislu annað kvöld. Svo verður brunað í bæinn eftir veisluna (kannski aðeins að leggja sig) og beint til Þorlákshafnar til að hitta alla í Herjólfi kl 12.
Og svo eru það bara EYJAR 2006. komin með merktu jakkana okkar Herdísar, vínið og útilegugræjurnar þannig að ég er good to go.

Heyrumst eftir versló ! - reyni að taka sem flestar myndir.
-Magnea Stjörnufífill
ps. myndir komnar af SigurRós tónleikunum
Magnea Arnar
Engin athugasemd